…ónei hér eru sko engir sultardropar, bara sultudropar. Í dag var frumraun Frúarinnar í að gera tómatasultu að hætti mömmu. Í þessa sultu notar maður græna tómata sem að eru látnir liggja í ediklegi yfir nótt…

…áður en þer eru skrældir….

Edik, vatn, sykur og vanillustangir soðið upp…

…á meðan tómatarnir eru sneiddir niður í báta…

…þegar sykurlögurinn er orðinn að sýrópi…

…skellir maður þeim grænu útí og…

…lætur þá karamellast…

…svo puðar maður bara herlegheitunum í krukku. Ælovit ❤️


Færðu inn athugasemd