Ég eignaðist svakalega fallegan púða um jólin og þar sem myndin á honum er svo yndisleg,  langaði mig að skipta um og setja sviðaðar myndir á nokkur rafkerti heimilisins. Frúin fór því og grúskaði smá og fann það sem henni líkaði hvað best…

Sjáið nú bara þennan dásemdarpúða, mér finnst hann æðislegur…

1

…ég byrjaði á að fjarlægja gamlar klæðingar utan af kertunum, en þær verða auðvitað geymdar til betri tíma…

2

Hér eru svo komnir tveir sætir, sitjandi á grein…

3

…þeir mæna upp til „stóra“ bróður.

4

Þessi er örlítið stærri, enda settur á stærra kerti.

5

Sko hérna eru þeir svo fuglakrúttin mín, bara sætir ❤

7

Mér finnst rafkertin mjög sniðug, maður getur alltaf breytt um mynd á þeim allt eftir hvernig skapið og  stíllinn er hverju sinni…

kveðja út í daginn og helgina…

Posted in , ,

One response to “Kerti fá nýjan ham…”

  1. Anna Sigga Avatar
    Anna Sigga

    Dásamlega fallegt 🙂

    Líkar við

Færðu inn athugasemd