Mig hefur dulítið langað í uuuu… reyndar langað mjög mikið, í glas með mynd af vinkonu minni henni Marilyn Monroe. 🙂 nú stundum verður maður að ganga sjálfur í verkið ef hlutirnir gerast ekki nóg og snökkt, og það gerði ég nebblilega! ég á svakalega flottan „dömu“bor og græjur sem ég dustaði rykið af og hóf framkvæmdir. Lítum á málið…
Sko hér er réttu græjurnar og mynd til að fara eftir…
Hér er búið að rissa upp útlínur og svo á hinni að fara eina umferð með demantsbor…
…og áfram slípað og pússað…
hún er nú kannski ekki alveg eins og Marilyn vinkona mín, en nokkuð lík frænku hennar… 😉
…og svei mér þá ef rauðvínið bragðaðist ekki bara betur í þessu „nýja“ glasi!!!
kveðja Gunna 🙂



Skildu eftir svar við gunnabirgis Hætta við svar