Mér þykir ekki leiðinlegt að breyta smá í kringum mig 😉 og það kom núna yfir mig ein mjög sterk svoleiðis tilfinning… ég ákvað sem sagt að víxla herbergjum þ.e innihaldi þeirra. ég færði sjónvarpsherbergið yfir í gestaherbergið þar sem það er stærra. ég er mjög ánægð með útkomuna og langar til að þið fáið að vera með mér í´essu 🙂 Í dag bíð ég upp á gestaherbergið, svjónvarpsherbergið er í smá auka yfirhalningu, þ.e ég þarf, já ég þarf að kalkbera eina furuhillu… en skoðu þetta saman.
hér er sko svítan, að vísu ekki stór en mér finnst hún kósý…
serían mín sem ég þæfði hér um árið, blandaði saman ull og blúndum, ég er alltaf voðalega skotin í henni…
uppstilling 1, en ummmm hentaði frúnni ekki…
skírnarkjólinn minn sem ég saumaði þegar ég var í grunnskóla. Börnin mín ásamt reyndar fleirum börnum hafa verið skírð í honum. Mamma sá um að sauma nöfn barnanna í hann…
Hlátur er lyf fyrir hjartað… satt er það!
heima hjá mér eru skór líka punt!
„gólfmottan“ sómar sér alltaf vel í glugganum!
snýtiklútar og alles við hendina, sögur eru mis átakalegar og því nauðsynlegt að hafa réttu græjurnar …
ljósmyndarinn í fjölskydunni tók þessa flottu mynd af ömmukrútti… og babúskur í röðum
ég er bara ánægð með þessar breytingar. En nú þarf að bretta upp ermar fyrir málningarvinnu og smá dudderý hér og þar… sjáumst!





Færðu inn athugasemd