



Þegar pabbi var jarðaður þá varð slatti af grafarljóðum eftir. Ég vildi endurnýta pappírinn og gera eitthvað úr honum til minningar um afa fyrir börnin okkar Siggu systir. Útkoman eru þessar fígúrur ur pappamassa og gifsi. Að sjálfsögðu eru þær merktar Sambandinu en við systur ólumst upp í sterkum Kaupfélagsanda…






Hér hefur verið töluverður leirburður í hús siðustu vikur. . þetta er afurðin og hún er til sölu….😉




…





…eitthvað er veðrið búið að vera skrýtið þetta „sumarið“ og hallast ég helst að þvi að það sé nýr afleysingamaður þarna uppi sem stýrir veðráttunni og kann þar að leiðandi ekki a alla takkana 😉 En hvað með það, sumardótið fór samt út á pallinn og tilbúið til brúks ef ske kynni að góður sólarglennudagur komi, sem verður þá nýttir til fullnustu….












…á meðan barnabörnunum er bannað að krota á annað en blöð.
En amman taldi samt nauðsyn að hressa uppá vinnuveskið sitt…






… við eigum tvo stóla með gervileðri sem farið er að flagna af og þeir því orðnir frekar sjoppulegir….
Frúin ákvað að fara í tilraunaverkefni með annan stólinn og mála hann svartann og gulann. En fyrst þurfti að hreinsa gerfileðurhúðina af og það gerði ég með því að nota límband og rífa þannig allt af. Svo bleytti ég stólinn með vatni og mýkingarefni (50/50) og málaði svo með textilmálningu…






…paskaeggið mitt fékk sér meðferð…
















….















