Flokkur: Óflokkað

  • …þegar vaknað er á sunnudagsmorgni fullur af orku, þá getur maður ekki annað en gripið tækifærið. Ég fór því í smá breytingar og byrjaði i svefnherberginu…

  • …allt í einu sótti á mig mikil löngun til að færa húsgögnin í stofunni örlítið til, æi það er nú nauðsynlegt að breyta til öðru hverju… 🙂 Þennan stól ætla ég að prófa að mála fljótlega….

  • …mig langaði að skipta út spegli inni á baðherbergi hjá okkur og pantaði hringlóttan spegil frá RL-design 😉 ég átti líka 3 gamlar hillur sem ég málaði svartar og svona er útkoman… fyrir og eftir…

  • Við eigum stórt og stæðilegt furueldhúsborð, sem var eiginlega komin tími á að lífga svolítið við. Það var hvíttað, en okkur langaði að breyta svolítið til. Við máluðum fæturnar með mattri svartri málningu og lökkuðum yfir plötuna svo viðurinn fengi að njóta sín 🙂 Hér er borðið fyrir og eftir sjæn… og nýjir stólar. Ég…

  • …á háaloftinu ❤ þangað er ljúft að leita og þá sérstaklega til að hlusta á rigninguna berja á þakinu…

  • …er það herbergi í húsinu sem mér finnst erfitt að gera „fínt“. Það er með gamalli og hálf sjoppulegri innréttingu. Ég tók mig nú til á helginni og reif niður tvo skápa sem voru ekki að nýtast vel…. en nú er verið að spá í að kaupa nýja innréttingu og skúffueiningar undir þvottavélina og þurrkarann.…

  • …það er fátt betra en geta duddað sér við að skella lit á striga. Útkoman er svo sem aukaatriði, en það að hafa gaman að er það sem skiptir mestu máli. Nýjasta áhugamál Frúarinnar er að gera kringlóttar myndir…

  • ….ég keypti fyrir einhverju síðan í Tiger filmu sem er krítartafla. Ég ákvað að líma hana á búrskápahurð í eldhúsinu…

  • …tiltekt i hobbýherbergi Frúarinnar er búin að vera mjööög lengi á dagskrá en nú loksins lét hún verða eitthvað úr þvi…

  • …eða þannig. Hver hefur ekki „lent í“ að vera laga til og óvart rekist óvar á annað verkefni sem er bara töluvert meira spennandi? Ænó… ég lenti í þannig í dag!!! Ég var nebblega að taka til i kjallaranum, sem er vægast sagt á hvolfi. Ég rakst þarna á ómálaðan striga sem mér fannst einmitt…