…ójá hér á bæ var þeim svo sannalega fagnað með pompi og pragt! skreytt úti sem inni með ljósum og öllu tilheyrandi. Það var skorið út í grasker og fleira skemmtilegt…
Dyrahamar sem Frúnni þótti við hæfi var settur upp til skrauts…
…og útidyrahurðin fékk á sig glaðhlakkaleg grasker!
Nornin var auðvitað með allar sínar græjur reddý fyrir næturbrölltið…
þetta er reyndar mjög gömul mynd af mér, ég hef nú aðeins bætt á mig síðan hún var tekin…
„Vinkonur“ mínar eða þannig, fengu að vera með í gleðskapnum…
Nornaseiði voru að sjálfsögðu „brugguð“ að hætti hússins…
skreytingar séð að innan og utan…
Dagur…
…og nótt.
Köngulóavefir voru teiknaðir með tússi á glugga, og svo skammar maður börnin fyrir að „krota“ á veggi!
Ekta grasker í bland við leirker tóku sig vel út, úti á stigapallinum í yndislegri vetrarkyrrðinni.
Húsið okkar uppljómað í nóttinni…
njótum komandi viku…