já það er nú ýmislegt sem kemur í ljós þegar kíkt er í geymslu eftir veturinn og m.a þessi forláti brúni brunnur…
dregin var fram málning að sjálfsögðu…grunnað……og málað…hvítt og rautt -nema hvað 🙂ég sé nú eftir því að hafa ekki takið „fyrir mynd“ af þessari fötu, en hún var öll í henglum og ekki ein einasta spýta föst saman. Eiginmaðurinn sagði að hún væri ónýt og ekkert hægt að gera við hana. Frúin -Nautið, rótaðist náttúrulega af stað þar sem orð eins og „ekki hægt“ ögrar Nautinu í´enni upp í að sýna fram á annað…sko eru þau ekki bara nokkuð fín, brunnurinn og „ónýta“ fatan? 😉Horft heim…