Einn af mínum mörgum veikleikum, er fyrir fallegum bollum 😉 Og um daginn sá ég svo svakalega sæta bolla sem bara urðu að koma með mér heim! haldið ekki að þeir séu RAUÐIR!!! hissa? 🙂 hehehe já minn uppáhaldslitur! Ég er búin að prófa að stylla þeim upp hér og þar, en finnst þeir hvergi njóta sín nóg og vel! Ég fann þó stað svona til bráðabirgða og ég bara verð að sýna ykkur þessa sætu krúttilegu bolla og diskinn sem ég lét fylgja með (ég stefni reyndar á, að bæta öðrum við)…
…eru þeir ekki flottir? það verður yndislegt að sötra úr þeim heitt súkkulaði með þeyttum rjóma, við kertaljós ælovit… 😉