Jæja þá er komið að síðasta kjól ársins, en samt ekki þeim síðasta úr skápnum mínum 😉 þessi er „spari-spari“ sem notaður hefur verið á sunnukórsballi og öðrum „flottum samkomum“. hann er það smart að hægt væri að gifta sig í honum… Kjóllinn er úr satíni og puffi og með perlum og pallíettum!
háir satín hanskar og flotta spari pallíettu-perluveskið frá henni mömmu!
flott spariveski með milljón perlum og pallíettum…
ísaumaðar perlur og pallíettur…
slitnir spariskór með sögu, sem mikið hefur verið plampað á, og þá sérstaklega af litlu ömmustelpunum mínum…