Ég ákvað að prófa svona í tilefni komu sumars, að duddast smávegis og gera tilraunir. Ég prófaði sem sé að yfirfæra mynd yfir á glerplatta..
Ég byrjaði á því að prenta út sætar gamaldags myndir…
Klippti þær út í rétta stærð…
fann til límlakk og pensil…
bar lím á plattana…
myndirnar settar á með myndina niður (að sjálfsögðu 😉 )
beið róleg í nokkra klukkutíma, bleytti smá í blaðinu og byrjaði að nudda RÓLEGA í burtu
og sko þessi líka flotti „antik“platti
…
bara nokkuð sniðugt…
ég skellti líka „mynd“ á bakka sem ég á og á morgun koma svo myndir af því verkefni…










Skildu eftir svar við Kristín S. Bjarnadóttir Hætta við svar