Nú er eldhúsglugginn komin í páskahaminn og var að sjálfsögðu myndaður í síðdegissólinni…
…ég byrjaði þó á að mynda þessa dásamlega fallegu túlipana sem hann pabbi færði mér í gær…
… og liturinn bara smellpassar 😉
páskalilju-gluggaskrautið mitt sem ég gerði á síðustu öld 😉 fær að príða eldhúsgluggann. þegar maður býr á 4 hæð þá er frekar erfitt að þvo gluggana að utan, svo maður verður bara að horfa í gegnum skítinn…
horft í glugga í glugga…
þessi flottu filtblóm voru í lengju og hvít að lit, ég reyndi að lita þau græn með matarlit. Það gekk nú ekki þar sem þau tóku ílla við lit , ég klippti því næst ræmuna niður svo blómin pössuðu í gluggahlerana mína og þau eru bara nokkuð sæt þar!
blóm og hænur…
Þessi sætu pör freistaðist ég til að kaupa í Pipar og salt, maður getur nú alveg misst sig í þeirri búð!
þessi yndislegu hænuegg málaði elsta barnabarnið mitt hún Birgitta Brá, fyrir ca. 10 árum og skiljanlega þykir ömmunni afskaplega vænt um þau…
Síðdegissólin kíkir inn um eldhúsgluggann minn og birtan gerir allt svo ævintýralegt…
hænsnaparið passar upp á ungann sinn…
meira af páskaglugganum
hér er páskakaffið tilbúið…
þessa gulu lukt skreytti ég með gulum filtblómum og tróð inn í hana seríu, útkoman varð nokkuð góð og birtan er falleg frá henni…
…það kemur meira fljótlega 🙂
…kveðja Gunna













Færðu inn athugasemd