þá er enn og aftur komið að því að kveðja ár og taka á móti nýju. Hér í jólalandi eru bara rólegheit og við njótum jólaljósanna 🙂
hér skellti ég saman gullkúluseríu og þæfðri blúnduseríu. Það kemur bara skemmtilega flott út!
Þennan „sleða“ sagaði ég út og smíðaði fyrir nokkrum árum og málaði svo á´ann
aðventuljósin og rugguhestastóð…
Hún mamma gaf mér þessa flottu skreytingu á aðventuljósin, fyrir möööööörgum árum og þau gera svakalega mikið fyrir heildar lúkkið 😉
að sjálfsögðu fékk „fatatréð“ smá upphalningu…
þessi kramarhús gerði frúin fyrir nokkrum árum…
jólin í hjónaherberginu… 😉 hóhóhó…
Jiii sjáið hve svefnherbergis-jólasveinarnir eru hissa… 😉
Farið nú varlega á gamlárskvöld og nýjársnótt. Takk fyrir innlit á árinu sem er að líða og „hittumst“ hress á því nýja! kveðja Gunna
Vá hvað það jólalegt og sætt hjá þér
gleðilegt ár
knús Sif
Líkar viðLíkar við
Takk fyrir Sif, alltaf gaman að fá komment á það sem maður er að gera!
kv. Gunna
Líkar viðLíkar við