Kjólklædda gínan

Ekki hefur frúin nú verið mjög dugleg við bloggið upp á síðkastið, enda sumarfrí og  því verið á endalausu flandri út og suður 😉  En í gær eignaðist ég æðislega flotta gínu, sem að hún Eik tengdadóttir mín þurfti að losna við! Og nú varð ég bara að deila myndum af´enni íklæddri palliettukjól sem ég eignaðist fyrir lööööööööööööngu síðan! Ég fékk líka þá flugu í hausinn að hafa einn „kjólabloggdag“ viku hérna, þar sem ég á til gommu af allavegana kjólum, fyrir öll tækifæri. en  það kemur bara í ljós 🙂 en hér kemur taka 1…

IMG_0609 Gínan mín mætt í hús og enn berstrípuð, en reddý fyrir fyrstu mátun...

IMG_0607                                 Jæja hvernig líst ykkur á´ana…

IMG_0601Þessi kjóll hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds, en hann er rosalega þungur!

IMG_0602                                …ég á sko líka „nokkur“ pör af skóm…

IMG_0604

IMG_0612                               Sjáið bara allar pallíetturnar og perlurnar sem saumaðar eru út í allann kjólinn!

IMG_0616                  Dulúð…

IMG_0618                                 …rautt og rómó svona í restina!  En vonandi fáið þið að hitta fröken Gínu fljótlega og þá í „nýju“ dressi… 😉

2 athugasemdir við “Kjólklædda gínan

  1. vá hvað þessi kjóll er gordjöss og held ég hafi aldrei séð svona dásamlega skó (nema í bió) allt outfittið er bara með því fallegra. Líst vel á einn kjóladag á viku, miðað við þessa tvo….. rauði kjóllinn er sko algjör dásemd líka,
    Hlakka til að sjá frammhaldið og hugmyndin er snilld 🙂

    kær kveðja
    Stína Sæm

    Líkar við

Færðu inn athugasemd